Man Utd íhugar að selja Ugarte - Liverpool vill leikmann í skiptum fyrir Salah - Vini Jr til Englands?
   mán 06. apríl 2026 11:45
Brynjar Ingi Erluson
Haldið sofandi í öndunarvél - Þjálfari PAOK flaug heim
Mircea Lucescu
Mircea Lucescu
Mynd: EPA
Rúmenski þjálfarinn Mircea Lucescu berst fyrir lífi sínu á SUUB-spítalanum í Búkarest. Sonur hans, Razvan, sem þjálfar PAOK í Gríkklandi flaug heim eftir leikinn gegn Panathinaikos í gær til þess að vera með fjölskyldunni á þessum erfiðu tímum.

Mircea veiktist aðeins nokkrum klukkutímum fyrir brottför í vináttulandsleik gegn Slóvakíu.

Leikurinn átti að vera kveðjuleikur hans sem þjálfari rúmenska landsliðsins.

Læknar rannsökuðu hann bak og fyrir áður en en hann fékk grænt ljós til að fara heim. Rétt áður en hann var útskrifaður fékk hann tvö hjartaáföll og liggur nú þungt haldinn á gjörgæslu.

Samkvæmt upplýsingum frá spítalanum í Búkarest er honum haldið sofandi í öndunarvél og fjölskyldan beðin um að koma saman á spítalanum.

Razvan, sonur Mircea, er þjálfari PAOK í Grikklandi, en hann fór með einkaþotu heim til Rúmeníu eftir leik liðsins gegn Panathinaikos í gær.

„Staðan er mjög erfið og bið ég ykkur um að sýna virðingu á þessu augnabliki. Starfsfólk spítalans veit best hvernig á að útskýra þessa hluti fyrir ykkur og gefa út yfirlýsingar þegar á við og þegar þau telja að tíminn sé réttur. Þið verðið að skilja það að þetta er alls ekki auðvelt,“ sagði Razvan Lucescu um stöðuna.
Slapp
banner