Bukayo Saka og Jurrien Timber ferðuðust ekki með Arsenal til Portúgal þar sem liðið heimsækir Sporting í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Mikel Arteta staðfesti þetta en hann vonaðist til að þeir yrðu klárir í slaginn gegn Bournemouth um næstu helgi.
Declan Rice og Leandro Trossard voru ekki með liðinu í tapinu gegn Southampton í enska bikarnum um helgina. Þá þurfti Gabriel að fara af velli vegna meiðsla í leiknum en Arteta sagði að þeir væru allir í hópnum fyrir leikinn á morgun.
Arsenal vonast til að snúa blaðinu við á morgun eftir að hafa fallið úr leik í bikarnum um helgina og þá tapaði liðið úrslitaleik enska deildabikarsins gegn Man City fyrir rúmri viku síðan.


