Davíð Snær Jóhannsson og félagar í Álasundi töpuðu fyrir Fredrikstad, 3-2, í norsku úrvalsdeildinni í dag.
Álasund kom sér upp í úrvalsdeildina undir lok síðasta árs og er nú í leit að taktinum í deild þeirra bestu.
Liðið tapaði gegn Lilleström í fyrstu umferðinni en tók síðan sitt fyrsta stig gegn Start í síðustu umfer.
Í kvöld komst liðið í 2-1 forystu en kastaði leiknum frá sér á síðustu tuttugu mínútunum.
Davíð Snær byrjaði leikinn en fór af velli á 76. mínútu. Ólafur Guðmundsson var ekki með liðinu í dag, en hann spilaði í fyrstu tveimur umferðunum. Álasund er í næst neðsta sæti með eitt stig og mætir KFUM Oslo í næstu umferð.

