Það hefur myndast nokkuð mikil umræða um það hvort að Max Dowman, 16 ára gamall leikmaður Arsenal, eigi að fara á lokakeppni HM með Englendingum í sumar.
Dowman hefur heillað þegar hann hefur fengið tækifæri með Arsenal á tímabilinu og var líklega eini leikmaður liðsins sem gat verið sáttur með frammistöðu sína í tapinu gegn Southampton í enska bikarnum í gærkvöldi.

Jack Wilshere, sem var sjálfur unglingastjarna hjá Arsenal, telur að leikmaðurinn geti vel farið á HM í sumar. Hann hefur fylgst náið með Dowman í mörg ár en hann þjálfaði hann í akademíu Lundúnafélagsins.
„Ég man að ég hringdi í föður minn og sagði við hann: 'Pabbi, þú verður að koma og horfa á þennan strák. Ég held að hann sé betri en ég var'. Pabbi minn er mjög hlutdrægur gagnvart mér og ég þarf stundum að rífast við hann," sagði Wilshere við Telegraph.
Wilshere, sem er í dag stjóri Luton, segist ekki vilja setja pressu á Dowman en það sé nú þegar mikið talað um hann.
„Það eina sem ég vil segja er að spænska landsliðið myndi taka hann með. Hann er klárlega nægilega góður. Yamal fór 16 ára á EM 2024 og var besti leikmaður mótsins," sagði Wilshere.