Halldór Árnason, fyrrum þjálfari Breiðabliks, telur að það hafi verið mistök hjá sínu gamla félagi að sækja ekki Gísla Eyjólfsson.
Gísli sneri heim úr atvinnumennsku í vetur og samdi við ÍA. Hann er uppalinn í Breiðabliki og hefur spilað þar stærstan hluta ferilsins en hann endaði á Akranesi.
Gísli sneri heim úr atvinnumennsku í vetur og samdi við ÍA. Hann er uppalinn í Breiðabliki og hefur spilað þar stærstan hluta ferilsins en hann endaði á Akranesi.
Eftir að hann skrifaði undir á Skaganum þá sagði hann í viðtali við Fótbolta.net að Breiðablik hefði ekki haft áhuga á að semja við sig. „Breiðablik er auðvitað uppeldisfélagið mitt og mér fannst ég skulda þeim að tala við þá fyrst. Þá fékk ég þau svör að þeir voru vel mannaðir í minni stöðu og vildu gleðja stuðningsmenn með breytingum og þeir hefðu ekki áhuga að bjóða mér samning, þannig það fór ekki lengra," sagði Gísli.
Dóri Árna, fyrrum þjálfari Blika, var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net í gær þar sem hann talaði um Gísla.
„Á vikunum áður en ég hætti var Gísli á leiðinni í Breiðabliki. Ég veit ekki hvaða U-beygja átti sér stað þar," sagði Dóri.
„Ég held að það hafi verið mistök, klárlega. Gísli er akkúrat það sem Breiðablik vantaði í fyrra, kraftmikill leikmaður og á góðan hátt er hann drulluerfiður. Hann er leikmaður sem Breiðablik vantar enn," bætti hann við.
Einnig var rætt um Gísla í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net en hægt er að hlusta á báða þessa þætti í spilurunum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.



