Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
   sun 05. apríl 2026 18:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enski bikarinn: Leeds í undanúrslit í fyrsta sinn í 39 ár eftir þvílíka dramatík
Mynd: EPA
West Ham 2 - 2 Leeds (2-4 í vítaspyrnukeppni)
0-1 Ao Tanaka ('26 )
0-2 Dominic Calvert-Lewin ('75 , víti)
1-2 Axel Disasi ('90 )
2-2 Mateus Fernandes ('90 )

Leeds er komið áfram í undanúrslit enska bikarsins eftir ótrúlegan leik gegn West Ham.

Bæði lið fengu góð færi til að skora fyrsta markið í upphafi leiks en það var Leeds sem braut ísinn.

Ao Tanaka hóf sóknina á miðjunni og hann fékk síðan boltann inn á teignum og skoraði með skoti sem hafði viðkomu í Axel Disasi og sveif yfir Alphonse Areola.

West Ham sótti í sig veðrið í seinni hálfleik. Taty Castellanos var nálægt því að jafna metin en hann átti skalla í stöngina.

Stuttu síðar fékk Leeds vítaspyrnu þegar Max Kilman braut á Brenden Aaronson. Dominic Calvert-Lewin steig á punktinn og skoraði af öryggi.

Wilfried Gnonto var á hársbreidd frá því að innsigla sigurinn þegar hann tók hælspyrnu í átt að marki en boltinn rúllaði rétt framhjá stönginni.

Ellefu mínútum var bætt við og West Ham náði að minnka muninn. Jarrod Bowen átti skot sem small í stönginni og Matheus Fernandes náði að fylgja á eftir og skoraði á opið markið.

Þessu var hvergi nærri lokið. Adama Traore átti fyrirgjöf þegar sex mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma og Disasi fór hátt með fótinn og náði að setja hann í boltann og skoraði.

Það þurfti því að framlengja leikinn og West Ham byrjaði af miklum krafti. Strax í upphafi framlengingarinnar misreiknaði Lucas Perri, markvörður Leeds, boltann hrikalega og skallaði aftur fyrir sig og Castellanos skoraði en hann var rangstæður í aðdragandanum og markið dæmt af.

Stuttu síðar var mikill atgangur inn á teig West Ham sem endaði með því að Gnonto skaut hátt yfir. Annað mark var síðan dæmt af West Ham þegar Fernandes var í rangstöðu eftir skot frá Jarrod Bowen í stöngina.

Leikurinn fór alla leið í vítaspyrnukeppni. Joel Piroe og Jarrod Bowen klikkuðu á fyrstu spyrnunum. Leeds skoraði úr næstu þremur spyrnum en Perri varði fjórðu spyrnu West Ham frá Pablo. Það var síðan Pascal Struijk sem tryggði Leeds sigurinn og farseðilinn í undanúrslitin í fyrsta sinn í 39 ár.
Slapp
banner
banner