Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
   þri 07. apríl 2026 22:07
Brynjar Ingi Erluson
England hefur innsiglað fimmta Meistaradeildarsætið
Arsenal tryggði fimmta Meistaradeildarsætið
Arsenal tryggði fimmta Meistaradeildarsætið
Mynd: EPA
Fimm ensk úrvalsdeildarlið fara í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili en sætið var tryggt með 1-0 sigri Arsenal á Sporting í 8-liða úrslitum keppninnar í kvöld.

UEFA, fótboltasamband Evrópu, gefur tveimur þjóðum sem eru með besta árangurinn í Evrópukeppnunum þremur, aukasæti í Meistaradeildinni.

Enska úrvalsdeildin hefur leitt kapphlaupið um aukasætið en öll níu félögin í Evrópu komu sér í 16-liða úrslit.

Aðeins fimm lið komust í 8-liða úrslit, en frábær frammistaða í deildarkeppnunum kom úrvalsdeildinni í sterka stöðu.

Nú er það öruggt að England fær fimmta Meistaradeildarsætið en á síðasta ári græddi Newcastle United á því með því að taka fimmta sæti deildarinnar.

Mikil samkeppni verður um fimmta sætið í ár en Liverpool leiðir baráttuna með 49 stig, aðeins einu stigi á undan Chelsea sem er í 6. sæti. Everton og Brentford eru með í baráttunni en þau eru í 7. og 8. sæti með 46 stig.

Það er einnig möguleiki fyrir England að fá sex og jafnvel sjö sæti í Meistaradeildinni. Til þess þurfa Aston Villa og Liverpool að enda fyrir utan topp fjóra og vinna Evrópudeildina og Meistaradeild Evrópu. Nottingham Forest á auðvitað einnig möguleika á að vinna Evrópudeildina og gæti leikið eftir það sem Tottenham gerði á síðustu leiktíð með því að vinna Evrópudeildina eftir ömurlegan árangur í úrvalsdeildinni.

Spánn er líklegast til að hreppa hitt aukasætið frá UEFA en það leiðir nokkuð örugglega gegn Ítalíu og Þýskalandi.
Slapp
banner
banner