Listahópurinn Skripo var um helgina í Kaupmannahöfn þar sem hann vann að stóru mural-verki fyrir FC Kaupmannahöfn. Verkið hefur þegar vakið töluverða athygli meðal stuðningsmanna félagsins og á samfélagsmiðlum. Muralið er tileinkað gömlum akademíuhetjum FCK – leikmönnum sem hafa komið upp úr akademíu félagsins og náð langt í boltanum, þar á meðal Orra Stein Óskarssyni, Hákoni Arnari Haraldssyni og Mohammed Daramy.
Í verkinu eru jafnframt skírskotanir í sögu félagsins, meðal annars frægar byrjunarliðsuppstillingar, eftirminnilegir leikir og þekktar tilvitnanir tengdar Kaupmannahöfn. Skripo hefur áður unnið verkefni fyrir Stjörnuna og hefur í auknum mæli vakið athygli fyrir verk sem tengja saman myndlist og fótbolta, þar sem knattspyrnustjörnur og menning leiksins eru í forgrunni.
Í tengslum við verkefnið fékk Viktor Bjarki Daðason einnig sérstakt verk af Ronaldinho, sem vakti mikla lukku. Sama dag og verkinu lauk vann FC Kaupmannahöfn stórsigur, 7–0, þar sem Youssoufa Moukoko skoraði þrennu.



