Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
   sun 05. apríl 2026 20:38
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Viljum ná óraunhæfum markmiðum“
Mynd: EPA
Leeds er komið í undanúrslit enska bikarsins í fyrsta sinn í 39 ár eftir sigur á West Ham í mögnuðum leik. Liðið náði tveggja marka forystu en West Ham jafnaði metin með mörkum í uppbótatíma. Leeds vann að lokum í vítaspyrnukeppni.

Daniel Farke, stjóri Leeds, var að vonum himinlifandi eftir leikinn.

„Við förum aldrei auðveldu leiðina. Við hefðum getað gert þetta auðveldara fyrir okkur ef við hefðum verið rólegri en þetta eru 8 liða úrslit enska bikarsins á útivelli og við gerum ráð fyrir því að hitt liðið gefi allt í þetta til loka. Ég er stoltur að við gátum róað okkur niður eftir bakslögin í leiknum," sagði Farke.

Farke segir að Leeds ætli sér að fara alla leið.

„Ég hef sagt áður að það yrði óraunhæft. Við viljum ná óraunhæfum markmiðum og við erum á réttri leið. Við viljum fagna aðeins fleiri stigum í úrvalsdeildinnii. Ef við fáum tækifæri til að spila í annað sinn á Wembley viljum við grípa það tækifæri með báðum höndum."
Slapp
banner
banner
banner