Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
   sun 05. apríl 2026 21:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Misstigu sig gegn botnliðinu í fjarveru Tómasar
Mynd: Hearts/Skjáskot
Hearts er í harðri titilbaráttu í Skotlandi en liðið missteig sig í dag þegar liðið gerði jafntefli gegn botnliði Livingston.

Tómas Bent Magnússon var ekki með Hearts vegna meiðsla. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli. Hearts er áfram á toppnum og er með 67 stig, stigi á undan Rangers og þremur stigum á undan Celtic.

Stefán Teitur Þórðarson var í byrjunarliði Hannover sem gerði 1-1 jafntefli geegn Elversberg í næst efstu deild í Þýskalandi. Þá var Brynjar Ingi Bjarnason ónotaður varamaður þegar Greuther Furth tapaði 2-0 gegn Paderborn.

Hannover er í 5. sæti með 50 stig en Greuther Furth er í næst neðsta sæti með 29 stig.

Hörður Björgvin Magnússon spilaði rúman klukkutíma þegar Levadiakos gerði 1-1 jafntefli gegn Aris í grísku deildinni. Hjörtur Hermannsson var í byrjunarliði Volos sem gerði 1-1 jafntefli gegn OFI Crete. Levadiakos er í 5. sæti með 22 stig en Volos er í 6. sæti með 17 stig.

Sverrir Ingi Ingason var í byrjunarliði Panathinaikos í markalausu jafntefli gegn PAOK. Panathinaikos er í 4. sæti með 50 stig.

Arnór Sigurðsson var í byrjunarliði Malmö sem gerði 1-1 jafntefli gegn Örgryte í fyrstu umferð sænsku deildarinnar en Daníel Tristan Guðjohnsen var ónotaður varamaður.

Viktor Bjarki Daðason og Rúnar Alex Rúnarsson sátu á bekknum þegar FCK rúllaði yfir Silkeborg 7-0 í dönsku deildinni en þetta var fyrsti leikur liðsins eftir að Jakob Neestrup lét af störfum. Liðið er í 7. sæti með 32 stig.
Slapp
banner
banner