Mateus Mane hefur vakið mikla athygli með Wolves, botnliði ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili. Hann hefur verið ljósasti punkturinn á erfiðu tímabili.
Mane fæddist í Portúgal en hefur spilað fyrir enska U18 landsliðið.
Mane fæddist í Portúgal en hefur spilað fyrir enska U18 landsliðið.
Þessi 18 ára gamli leikmaður er núna sagður hafa valið að spila fyrir Portúgal en hann var með portúgalska U21 landsliðinu í síðasta verkefni.
Blaðamaðurinn Ben Jacobs segir portúgalska fótboltasambandið hafa lagt mikla vinnu í það að sannfæra Mane sem hafi orðið til þess að leikmaðurinn efnilegi hafi valið að spila fyrir Portúgal frekar en England.
Margir fundir hafi átt sér stað en á nýlegum fundi hafi U21 landsliðsþjálfarinn Luis Freire kynnt framtíðarsýn sína fyrir Mane í smáatriðum og útskýrt hvernig hann gæti orðið mikilvægur hluti liðsins.
Forseti portúgalska sambandsins, Pedro Proenca, og A-landsliðsþjálfarinn Roberto Martínez lögðu jafnframt áherslu á í samtölum við Mane að þeir teldu hann geta spilað fyrir A-landslið Portúgals á næstu árum.
Mane var mjög spenntur eftir alla þessa fundi og ákvað því að velja Portúgal fram yfir England á þessum tímapunkti.


