Man Utd íhugar að selja Ugarte - Liverpool vill leikmann í skiptum fyrir Salah - Vini Jr til Englands?
   mán 06. apríl 2026 16:33
Brynjar Ingi Erluson
Mjólkurbikarinn: Stórbrotið sigurmark Gróttu - Umdeilt atvik í uppbótartíma
Tristan Freyr skoraði stórbrotið sigurmark Gróttu
Tristan Freyr skoraði stórbrotið sigurmark Gróttu
Mynd: Grótta
Grótta 1 - 0 Álftanes
1-0 Tristan Freyr Ingólfsson ('10 )
Lestu um leikinn

Grótta kom sér í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins með því að vinna Álftanes, 1-0, í Miðgarði í dag. Grótta fékk fjölmörg færi til að loka leiknum í þeim síðari og þá kom umdeilt atvik undir lok leiks sem hefði getað komið Álftnesingum inn í leikinn.

Tristan Freyr Ingólfsson skoraði sigurmark Gróttu á 12. mínútu með stórglæsilegu skoti fyrir utan teig. Hann fékk boltann úti hægra megin, setti boltann á vinstri fótinn og hamraði honum neðst í nærhornið.

Álftanes fékk líka sína sénsa og byrjaði seinni hálfleikinn betur en það vantaði aðeins upp á herslumuninn.

Þegar leið á hálfleikinn komu Gróttu-menn sér í nokkur úrvalsfæri en Tristan átti skot í þverslá og síðan færi undir lokin en Þorgeir Páll Gíslason varði vel. Hann hafði einnig varið frá Kristófer Dan Þórðarsyni fyrr í leiknum.

Í uppbótartíma kom stórt atvik sem hefði getað reynst Álftnesingum dýrmætt. Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson fékk boltann í miðjum teignum, tók skotið sem virtist fara af hendinni á varnarmanni Gróttu og út fyrir teiginn áður en Pétur Guðmundsson, dómari leiksins, dæmdi aukaspyrnu. Álftnesingar kölluðu eftir vítaspyrnu en fengu ekki.

Þeir fengu aukaspyrnuna sem var þeirra síðasta tækifæri til að komast í framlengingu en skotið yfir markið.

Grótta er komið áfram eftir mikinn baráttuleik og verður í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit.
Slapp
banner
banner