Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
   þri 07. apríl 2026 13:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaraspáin - Einn leiðinlegasti leikur ársins
Real Madrid tekur á móti Bayern München.
Real Madrid tekur á móti Bayern München.
Mynd: EPA
Óskar Smári leiðir keppnina.
Óskar Smári leiðir keppnina.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi er að elta.
Gylfi er að elta.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Í kvöld hefjast átta-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu með tveimur mjög áhugaverðum leikjum.

Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.

Gylfi Tryggvason
Real Madrid 2 - 1 Bayern Munchen
Nú er maður í þeirri stöðu að elta helvítið hann Óskar Smára. Staða sem ég hef engan áhuga á að venjast í ár svo ég ætla að snúa vörn í sókn hér og spá Real sigri af því að það er ekkert öruggara í þessum heimi en að hann sé að spá því að Luis Diaz vinni þennan leik fyrir Bæjara. Vini Jr vinnur þetta því miður.

Sporting 0 - 2 Arsenal
Ég sé enga leið fyrir Arsenal til að skora öðruvísi en Gabriel eftir horn frá Rice eða Rice með skoti fyrir utan teig.

Ætli mörkin þeirra verði ekki þannig?

Óskar Smári Haraldsson
Real Madrid 1 - 1 Bayern Munchen
Stórmeistarajafntefli. Luis Diaz skorar eitthvað þvælumark og Harry Kane klúðrar víti. Valverde setur hann fyrir Real. Þetta verður stál í stál.

Sporting 1 - 2 Arsenal
Sporting slóu út Bodo á ótrúlegan hátt í síðustu umferð og voru frábærir á Estadio Jose Alvalade. Þetta verður snúinn leikur fyrir Arsenal sem eru í smá slömpi, 1-2 torsóttur en gríðarlega mikilvægur sigur Arsenal manna. Gyökeres skorar alltaf í þessum leik.

Fótbolti.net - Mate Dalmay
Real Madrid 3 - 3 Bayern Munchen
Það verður meira líf í þessum leik en hinum. Kane kemur Bayern yfir snemma og leikurinn verður galopin. Lokatölur 3-3.

Sporting 1 - 0 Arsenal
Þetta verður einn leiðinlegasti leikur ársins. Gestirnir mæta brotnir eftir FA Cup tap um helgina og verjast litlir í sér og varkárir. Sporting eru ennþá heitir eftir 100-0 sigurinn gegn Bodö um daginn og ná 1-0 sigri.

Staðan í heildarkeppninni:
Óskar Smári - 24
Fótbolti.net - 19
Gylfi Tryggva - 18
Slapp
banner
banner