Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
   þri 07. apríl 2026 18:53
Brynjar Ingi Erluson
Lucescu er látinn - Þriðji titlahæsti þjálfari sögunnar
Mircea Lucescu er látinn
Mircea Lucescu er látinn
Mynd: EPA
Rúmenska goðsögnin Mircea Lucescu lést í kvöld, 80 ára að aldri, en þetta staðfesti University Emergency-spitalinn í Búkarest í kvöld.

Lucescu átti magnaðan feril sem bæði leikmaður og þjálfari, en hann er langsigursælasti þjálfari í sögu þjóðarinnar og átti einnig frábæran feril sem leikmaður.

Hann lék lengst af með Dinamo Bucaresti í heimalandinu og spilaði þá 64 A-landsleiki.

Strax eftir atvinnumannaferilinn hélt hann í þjálfun og var snemma ráðinn þjálfari landsliðsins sem hann stýrði í fimm ár áður en hann tók við Dinamo.

Hann þjálfaði mörg stórlið á löngum þjálfaraferli sínum en náði mestum árangri hjá úkraínska félaginu Shakhtar Donetsk, sem hann gerði að einu sigursælasta liði Úkraínu.

Á 12 árum tókst honum að vinna 22 titla, þar á meðal UEFA-bikarinn árið 2009.

Alls vann hann 38 titla sem þjálfari en þjálfaraferlinum lauk með rúmenska landsliðinu.

Hann stýrði Rúmenum í 1-0 tapinu gegn Tyrkjum í undanúrslitum HM-umspilsins og varð þar með elsti landsliðsþjálfari sögunnar. Rúmenar áttu síðan æfingaleik við Slóvakíu, en nokkrum tímum fyrir flug fékk Lucescu fyrir hjartað og gat því ekki ferðast í leikinn.

Þetta átti að vera kveðjuleikur Lucescu en hann fékk aldrei tækifærið til að kveðja. Í kjölfarið var greint frá því að hann hefði látið af störfum.

Batahorfur hans voru jákvæðar en daginn sem hann átti að útskrifast af spítalanum fékk hann tvisvar fyrir hjartað og var haldið sofandi í öndunarvél áður en greint var frá andláti hans í kvöld.

Lucescu sagði árið 2010 að draumur hans væri að deyja á vellinum og má segja að hann hafi fengið ósk sína uppfyllta.

Hann er eini þjálfarinn í sögunni til að vinna titil með sjö félögum og er þriðji titlahæsti þjálfari sögunnar á eftir Sir Alex Ferguson og Pep Guardiola.


Slapp
banner
banner