Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   mán 06. apríl 2026 20:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Skaut Napoli upp fyrir Milan
Mynd: EPA
Napoli fékk Milan í heimsókn í ítölsku deildinni í kvöld.

Rasmus Höjlund var ekki með Napoli vegna veikinda en Matteo Politano kom inn á sem varamaður og reyndist hetja liðsins.

Hann kom inn á þegar um stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma. Fimm mínútum síðar átti Mathias Olivera fyrirgjöf og boltinn barst til Politano á fjærstönginni og hann negldi boltanum í netið.

Napoli fór upp fyrir Milan í 2. sæti með sigrinum. Liðið er með 65 stig en Milan með 63 stig. Inter er með sjö stiga forystu á toppnum.

Juventus vann dýrmætan sigur á Genoa þar sem Mikael Egill Ellertsson spilaði allan leikinn. Juventus er í 5. sæti með 57 stig, aðeins stigi á eftir Como sem gerði jafntefli gegn Udinese fyrr í dag. Genoa er í 14. sæti með 33 stig.

Napoli 1 - 0 Milan
1-0 Matteo Politano ('79 )

Juventus 2 - 0 Genoa
1-0 Bremer ('4 )
2-0 Weston McKennie ('17 )
2-0 Aaron Martin ('75 , Misnotað víti)


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 34 25 4 5 80 31 +49 79
2 Napoli 34 21 6 7 52 33 +19 69
3 Milan 34 19 10 5 48 27 +21 67
4 Juventus 34 18 10 6 57 29 +28 64
5 Como 34 17 10 7 59 28 +31 61
6 Roma 34 19 4 11 48 29 +19 61
7 Atalanta 34 14 12 8 47 32 +15 54
8 Lazio 34 12 12 10 37 33 +4 48
9 Bologna 34 14 6 14 42 41 +1 48
10 Sassuolo 34 13 7 14 41 44 -3 46
11 Udinese 34 12 8 14 41 46 -5 44
12 Parma 34 10 12 12 25 40 -15 42
13 Torino 34 11 8 15 39 56 -17 41
14 Genoa 34 10 9 15 40 48 -8 39
15 Fiorentina 34 8 13 13 38 45 -7 37
16 Cagliari 34 9 9 16 36 49 -13 36
17 Lecce 34 7 8 19 22 46 -24 29
18 Cremonese 34 6 10 18 26 51 -25 28
19 Verona 34 3 10 21 23 56 -33 19
20 Pisa 34 2 12 20 24 61 -37 18
Slapp
banner
banner