Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
Davíð Helgi: Búinn að halda þessu fagni leyndu
Haraldur Freyr: Of langur tími til þess að 'suffera'
Enginn feluleikur hjá Hadda - „Ef þú ert ekki tilbúinn að leggja þig fram þá spilarðu ekki í KA“
Guðni Eiríks: Það er ekki tilfinningin sem ég fæ
Rúnar Páll: Við erum helvítis klaufar
Fyrsti leikurinn með Þór/KA síðan 2021 - „Þokkalega sanngjarnt"
Gunnar Heiðar: Við erum allir í 'revenge mode'
Alli Jói: Hélt að vorbragur væri dautt hugtak í íslenskum fótbolta
Rændar vítaspyrnu - „Bara frábær markvarsla hjá útileikmanni Vals“
Brynjar Björn: Við fáum það í bakið, ekkert flóknara en það
„Þetta er náttúrulega gífurlega ungt lið“
„Hlýtur að vera ótrúlega erfitt að spá í þessa deild“
Bjarki Baldvins: Held að samkvæmt ströngustu reglum megum við ekki vera þjálfarar
Damir: Vonandi springur hann út hjá okkur
Ray virðir stigið: Vona að við getum bætt við einum reynslumeiri manni
Badu svekktur: Væri gott að fá góðan liðsstyrk
Anton Ingi: Töpuðum í raun fyrir sjálfum okkur
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
   þri 07. apríl 2026 12:30
Kári Snorrason
Ægir Jarl ræðir heimkomuna - „Kitlar rosalega að ná að spila“
Mynd: Fram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ægir Jarl Jónasson er genginn í raðir Fram frá danska liðinu AB. Samningur hans við félagið átti að renna út í lok júní en Framarar náðu samkomulagi við AB um að fá hann fyrr til liðsins.

Ægir er fæddur 1998, og er uppalinn í Fjölni en gekk í raðir KR árið 2019 og spilaði þar undir stjórn Rúnars Kristinssonar, núverandi þjálfara Fram, áður en hann hélt til AB árið 2024.

Fótbolti.net ræddi við Ægi um heimkomuna fyrr í dag.

Góður tímapunktur
„Ég var að klára samninginn minn við AB í sumar. Frúin er ólétt með okkar annað barn, þannig að það var góður tímapunktur að koma heim.

Fram var lengi búið að hafa samband og mér leist mjög vel á það. Þeir höfðu samband í fyrrasumar og ég er búinn að vera í virku samtali við þá. Ég er mjög spenntur fyrir þessu verkefni.“


Þekkir Rúnar vel
Ægir segir önnur lið hérlendis hafa sýnt áhuga en samband hans og Rúnars Kristinssonar vógu þungt í valinu.
„Já, klárlega. Ég þekki Rúnar vel og hann þekkir mig. Ég veit hvað ég hef í honum. Að sjálfsögðu hjálpaði það mjög mikið.“

„Fyrstu dagarnir hafa verið flottir. Ég er reyndar bara búinn að fara á eina æfingu en aðstæðan og allt þarna er upp á tíu. Mér líst vel á strákana og liðið en ég er enn bara að koma mér fyrir.“

Reiknar ekki með að ná fyrsta leik
Fram mætir ÍA í Úlfarsárdalnum í fyrstu umferð næstkomandi sunnudag. Ægir hefur verið að glíma við meiðsli og var spurður út í heilsuna.

„Ég er allur að koma til. En það eru kannski ein, tvær vikur í mig. Ég kem vonandi sem fyrst. Mér kitlar rosalega að ná að spila. Ég veit ekki alveg hvort ég nái fyrsta leiknum. Ég reikna ekki með því en við skulum sjá til.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner