Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
   mán 06. apríl 2026 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Hann kemst næst því að skora eins og Salah"
Mynd: EPA
Mohamed Salah yfirgefur Liverpool í sumar þegar samningur hans við félagið rennur út.

Menn velta því fyrir sér hver gæti leyst mann eins og Salah af. Hann hefur verið einn besti leikmaður heims undanfarin ár en hefur verið langt frá sínu besta á þessu tímabili.

Chris Waddle, fyrrum landsliðsmaður Englands, telur að Jarrod Bowen, leikmaður West Ham, sé góður kostur fyrir Liverpool.

„Ég held að Jarrod Bowen sé sá leikmaður sem ég hef séð sem kemst næst því að skora mörk eins og Salah, en hann er að eldast. Ef West Ham fellur, þá eru möguleikar á að Liverpool fái nokkur ár frá honum.“

Slapp
banner
banner