Bosníski boltastrákurinn Afan Cizmic er í miklum metum í heimalandinu þessa dagana eftir að hann stal vítaskyttumiða ítalska markvarðarins Gianluigi Donnaruma í úrslitaleik Ítalíu og Bosníu/Hersegóvínu upp á að komast á HM.
Miðinn innihélt upplýsingar um vítaskyttur Bosníu en hinn 14 ára Cizmic tók miðann og stakk honum í vasann. Donnarumma fór því miðalaus inn í vítaspyrnukeppnina.
Miðinn innihélt upplýsingar um vítaskyttur Bosníu en hinn 14 ára Cizmic tók miðann og stakk honum í vasann. Donnarumma fór því miðalaus inn í vítaspyrnukeppnina.
Ítalinn kvartaði við dómara leiksins en það kom ekki að sök og Bosnía tryggði sér sigur. Donnarumma varði ekki eina einustu spyrnu og Ítalía missti þar með af HM í þriðja skiptið í röð.
Cizmic hefur vakið mikla athygli í Bosníu og eru fjölmiðlar og stuðningsmenn farnir að kalla eftir því að hann fái að fara með liðinu á HM.
Í viðtölum segir hann sjálfur ætla að setja miðann á uppboð og mun ágóðinn renna til góðgerðarmála. Bosnía er í riðli með gestgjöfunum í Kanada, Katar og Sviss.
En Bosnia están convirtiendo en un ídolo a Afan Cizmic, un joven recogepelotas de 14 años que le robó a Donnarumma la lista de lanzadores bosnios durante la tanda de penaltis.
— Jose Rodríguez (@JosRodriguez37) April 6, 2026
Se está pidiendo, incluso, que le lleven al Mundial. pic.twitter.com/iYIqSL0eAT

