Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
banner
   þri 07. apríl 2026 22:47
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Engin þynnka í Southampton sem vann fimmta leikinn í röð
Mynd: Southampton FC/X
Wrexham 1 - 5 Southampton
0-1 Kuryu Matsuki ('12 )
0-2 Flynn Downes ('22 )
1-2 Josh Windass ('34 )
1-3 Cyle Larin ('61 )
1-4 Ross Stewart ('81 )
1-5 Finn Azaz ('83 )

Mikil gleði ríkir hjá Southampton sem komst í undanúrslit enska bikarsins um helgina og fagnaði síðan 5-1 stórsigri á Wrexham í umspilsbaráttu í ensku B-deildinni.

Southampton vann Arsenal óvænt í 8-liða úrslitum enska bikarsins með marki undir lok leiks.

Það fór mikil orka í klára þann leik og voru alls sex breytingar gerðar á byrjunarliðinu.

Kuryu Matsuki og Flynn Downes komu Southampton í 2-0 á rúmum tuttugu mínútum. Josh Windass minnkaði muninn á 34. mínútu en gestirnir frá Southampton gerðu út um leikinn.

Cyle Larin bætti við þriðja á 61. mínútu skoraði hetjan gegn Arsenal, Ross Stewart, fjórða markið áður en Finn Azaz bætti við fimmta tveimur mínútum síðar.

Þetta var fimmti sigur Southampton í röð sem er komið upp fyrir Wrexham í baráttunni um 6. sætið með 66 stig og á leik til góða. Wrexham, sem dettur niður í 7. sætið, er með 64 stig.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 41 25 9 7 84 42 +42 84
2 Ipswich Town 39 20 12 7 69 40 +29 72
3 Middlesbrough 41 20 12 9 62 41 +21 72
4 Millwall 41 21 9 11 56 47 +9 72
5 Hull City 41 20 8 13 63 58 +5 68
6 Southampton 40 18 12 10 68 49 +19 66
7 Wrexham 41 17 13 11 63 58 +5 64
8 Derby County 41 18 9 14 60 51 +9 63
9 Norwich 41 17 7 17 55 48 +7 58
10 Watford 41 14 15 12 52 49 +3 57
11 Bristol City 41 16 9 16 52 51 +1 57
12 QPR 41 16 9 16 58 63 -5 57
13 Stoke City 41 15 9 17 48 45 +3 54
14 Preston NE 41 13 15 13 48 52 -4 54
15 Swansea 41 15 9 17 49 54 -5 54
16 Birmingham 41 14 11 16 49 52 -3 53
17 Sheffield Utd 41 15 6 20 57 58 -1 51
18 Charlton Athletic 41 12 13 16 38 49 -11 49
19 Blackburn 41 12 11 18 37 49 -12 47
20 West Brom 41 11 12 18 42 56 -14 45
21 Portsmouth 40 10 12 18 40 57 -17 42
22 Leicester 41 11 14 16 54 63 -9 41
23 Oxford United 41 9 14 18 39 54 -15 41
24 Sheff Wed 41 1 10 30 25 82 -57 -5
Slapp
banner
banner