Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   mán 06. apríl 2026 16:53
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Þórir ónotaður varamaður í þriggja marka tapi - Bjarki sneri aftur með Venezia
Bjarki Steinn er mættur aftur á völlinn
Bjarki Steinn er mættur aftur á völlinn
Mynd: Venezia FC
Þórir Jóhann Helgason og félagar í Lecce töpuðu fyrir Atalanta, 3-0, í Seríu A á Ítalíu í dag.

Miðjumaðurinn kom við sögu í síðasta leik gegn Roma sem var hans fyrsti síðan í byrjun ársins.

Hann sat allan tímann á bekknum í dag. Varnarmaðurinn Giorgio Scalvini skoraði fyrir Atalanta á 29. mínútu og bætti Nikola Krstovic, fyrrum samherji Þóris, við öðru þegar rúmur hálftími var eftir og gerði Giacomo Raspadori út um leikinn tuttugu mínútum fyrir leikslok.

Udinese og Como gerðu markalaust jafntefli í Údín. Agaleg úrslit fyrir Como sem situr í 4. sæti deildarinnar með 58 stig og gefa nú Juventus möguleika á að komast nær þeim í baráttunni um Meistaradeildarsæti.

Bjarki Steinn Bjarkason sneri aftur á völlinn með Venezia sem vann 3-1 sigur á Juve Stabia í B-deildinni. Þetta var fyrsti leikur Bjarka síðan í desember.

Venezia er á toppnum í deildinni með 71 stig þegar fimm leikir eru eftir.

Udinese 0 - 0 Como

Lecce 0 - 3 Atalanta
0-1 Giorgio Scalvini ('29 )
0-2 Nikola Krstovic ('59 )
0-3 Giacomo Raspadori ('73 )


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 25 3 5 78 29 +49 78
2 Milan 33 19 9 5 48 27 +21 66
3 Napoli 33 20 6 7 48 33 +15 66
4 Juventus 33 18 9 6 57 29 +28 63
5 Como 33 16 10 7 57 28 +29 58
6 Roma 33 18 4 11 46 29 +17 58
7 Atalanta 33 14 12 7 45 29 +16 54
8 Bologna 33 14 6 13 42 39 +3 48
9 Lazio 33 12 11 10 34 30 +4 47
10 Sassuolo 33 13 6 14 41 44 -3 45
11 Udinese 33 12 7 14 38 43 -5 43
12 Torino 33 11 7 15 37 54 -17 40
13 Genoa 33 10 9 14 40 46 -6 39
14 Parma 33 9 12 12 24 40 -16 39
15 Fiorentina 33 8 12 13 38 45 -7 36
16 Cagliari 33 8 9 16 33 47 -14 33
17 Cremonese 33 6 10 17 26 47 -21 28
18 Lecce 33 7 7 19 22 46 -24 28
19 Verona 33 3 9 21 23 56 -33 18
20 Pisa 33 2 12 19 24 60 -36 18
Slapp
banner
banner
banner