Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
   þri 07. apríl 2026 08:26
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jónatan á leið í myndatöku - „Þetta er grautfúlt"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jónatan Ingi Jónsson, leikmaður Vals, er á leið í myndatöku eftir að hafa meiðst í tapi Vals gegn KR í Mjólkurbikarnum í gær.

Jónatan hefur verið að kljást við meiðsli á undirbúningstímabilinu en hann byrjaði á bekknum í gær. Hann kom inn á í hálfleik en þurfti að fara af velli fimm mínútum síðar vegna ökklameiðsla.

Jónatan fann samstundis að eitthvað var að og gaf strax merki um skiptingu.

„Þetta er grautfúlt, frábær leikmaður og er að koma til baka úr meiðslum," sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn.

Kristinn Freyr Sigurðsson og Patrik Pedersen eru einnig á meiðslalistanum en Hermann býst við því að þeir verði ekki klárir fyrr en seinni hluta sumarsins. Hann sagði þá frá því að Orri Sigurður Ómarsson væri byrjaður að æfa.
Frammistaðan ekki áhyggjuefni - „Skal hundur heita ef það verður skorað flottara mark í sumar“
Slapp
banner