Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
   þri 07. apríl 2026 09:00
Elvar Geir Magnússon
Rúnar fann fyrir í kálfanum - „Þurfum að sjá hvernig vikan þróast“
Rúnar Már hefur verið að glíma við meiðsli í kálfa.
Rúnar Már hefur verið að glíma við meiðsli í kálfa.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Már Sigurjónsson, leikmaður ÍA, var tekinn af velli eftir 25 mínútna leik þegar ÍA vann 4-0 sigur á Haukum í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í gær.

„Þetta er vont fyrir heimamenn ef Rúnar er meiddur rétt fyrir mót. Við skulum vona það besta," skrifaði Alexander Tonini, fréttamaður Fótbolta.net, í textalýsingu frá leiknum.

ÍATV sýndi leikinn í beinni og hér fyrir neðan má sjá viðtöl sem tekin voru eftir leikinn. Þar var Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, spurður út í skiptinguna á Rúnari.

„Rúnar er búinn að vera með meiðsli í kálfa og fann aðeins fyrir þessu. Við vorum komnir í 2-0 á þessum tímapunkti svo við tókum hann út af. Svo verðum við bara að sjá hvernig vikan þróast hjá honum," segir Lárus.

Besta deildin er að fara af stað og ÍA heimsækir Fram í fyrstu umferðinni á sunnudaginn.

Rúnar er 35 ára miðjumaður sem á 32 landsleiki á ferilskrá sinni. Undir lok síðasta tímabils leysti hann af sem miðvörður og gerði það fantavel.


Slapp
banner
banner