Það hefur mikið verið rætt og skrifað um stöðu ítalska fótboltans eftir að landsliðið mistókst að komast á þriðja heimsmeistaramótið í röð. Ítalía tapaði gegn Bosníu í úrslitaleik umspilsins fyrir mótið.
Einn af þeim sem hefur tjáð sig er þýska goðsögnin Jurgen Klinsmann. Hann spilaði með Inter og Sampdoria þegar ítalska deildin var sú besta í heimi.
Einn af þeim sem hefur tjáð sig er þýska goðsögnin Jurgen Klinsmann. Hann spilaði með Inter og Sampdoria þegar ítalska deildin var sú besta í heimi.
Klinsmann segist hafa átt erfitt með svefn eftir að Ítalía komst ekki inn á HM í enn eitt skiptið en honum þykir mjög vænt um landið.
„Ítalía þjáist af skorti á leiðtogum, leikmönnum sem geta tekið menn á og skorti á trú á ungu leikmönnunum,“ sagði þýska goðsögnin.
„Í ykkar landi væru leikmenn eins og Lamine Yamal og Jamal Musiala líklega sendir í Serie B til að safna reynslu. Margir þjálfarar vinna enn út frá því að tapa ekki frekar en að vinna hvað sem það kostar, og þetta eru afleiðingarnar.“


