Sigurður Breki Kárason (2009), leikmaður KR, fékk heilahristing í leik með U17 landsliðinu gegn Ítalíu í undankeppni EM í síðasta mánuði. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var spurður út í stöðuna á honum eftir sigur liðsins á Val í Mjólkurbikarnum í gær.
Lestu um leikinn: KR 4 - 2 Valur
„Við vonum að hann geti byrjað að skokka á morgun (í dag). Hann hefur tekið stórstigum framförum dag frá degi en hann kom ekki góður frá Ítalíu. Við bindum vonir við, ef ekkert bakslag kemur, að hann verði klár í leikinn á móti Keflavík," sagði Óskar Hrafn.
Sigurður Breki varð yngsti leikmaðurinn í sögu efstu deildar til að byrja leik í fyrra aðeins 15 ára og 125 daga gamall en hann sló þá 31 árs gamalt met Eiðs Smára Guðjohnsen.
„Það er ljóst að við erum ekki að fara taka neinar áhættur með leikmann eins og hann. Hann er það mikilvægur að við getum ekki fórnað skammtíma hagsmunum fyrir langtíma hagsmuni."
Óskar Hrafn sagði frá því að Hjalti Sigurðsson yrði frá næstu vikurnar vegna axlarmeiðsla. Þá eru Birgir Steinn Styrmisson og Gyrðir Hrafn Guðbrandsson að stíga upp úr meiðslum.

