Júlíus Magnússon var á skotskónum með Elfsborg sem vann 2-0 sigur á Gautaborg í 1. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í dag.
Miðjumaðurinn gerði annað mark Elfsborg eftir fyrirgjöf frá Simon Olsson á 65. mínútu.
Ari Sigurpálsson kom inn af bekknum fjórum mínútum eftir markið og þá var Kolbeinn Þórðarson í byrjunarliði Gautaborgar.
Góð byrjun hjá Elfsborg sem var afar slakt seinni hluta síðasta tímabils undir Oscar Hiljemark en hann hætti og tók Björn Hamberg, aðstoðarmaður Graham Potter í sænska landsliðinu, við keflinu.
Kristófer Jónsson var í byrjunarliði Triestina sem gerði 1-1 jafntefli við Pro Patria í C-deildinni á Ítalíu.
Fall Triestina var staðfest fyrir þremur vikum og er liðið nú að reyna klára tímabilið með sæmd.
Pro Patria jafnaði metin þegar lítið var eftir af leiknum. Triestina er á botninum með 9 stig.
Kolbeinn Birgir Finnsson var í liði Vålerenga sem tapaði fyrir Viking, 1-0, í 3. umferð norsku úrvalsdeildarinnar. Hilmir Rafn Mikaelsson sat allan tímann á varamannabekk Viking. Liðin eru hlið við hlið í 2. og 3. sæti deildarinnar með 6 stig.


