Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
   sun 05. apríl 2026 22:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Silva yfirgefur Man City í sumar (Staðfest) - „Hann er einstakur"
Mynd: EPA
Bernardo Silva mun yfirgefa Man City í sumar þegar samningur hans við félagið rennur út.

Pep Lijnders, aðstoðarþjálfari City, stýrði liðinu í 4-0 sigri liðsins gegn Liverpool í enska bikarnum í gær þar sem Pep Guardiola tók út leikbann.

„Þú skiptir aldrei út leikmanni fyrir sama leikmann, því þeir eru ekki til. Bernardo Silva er einstakur,“ sagði Lijnders.

„Ég vona að hann njóti síðustu mánaðanna, þetta eru bara sex vikur, og að hann eigi góða kveðjustund og hann á skilið alla þá athygli líka.“

Silva er 31 árs en hann hefur unnið úrvalsdeildina sex sinnum og Meistaradeildina einu sinni á þeim níu tímabilum sem hann hefur verið hjá félaginu.
Slapp
banner