Bandaríski landsliðsmaðurinn Agyemang fór af velli á börum grátandi eftir að hafa greinilega hlotið alvarleg meiðsli í gær, annan í páskum.
Agyemang er leikmaður Derby í Championship deildinni en hann þurfti að fara af velli í sigri liðsins gegn Stoke í gær. Hann þurfti að fá aðhlynningu þegar hann lenti illa eftir að hann stökk upp í boltann.
Hann var að greinilega sárþjáður og vonsvikinn þegar hann var borinn af velli.
Þessi 25 ára gamli framherji hefur spilað 14 landsleiki og skorað sex mörk fyrir hönd Bandaríkjanna og vonast væntanlega til að vera í hópnum fyrir HM sem fram fer í heimalandinu.
BREAKING: USMNT and Derby County striker Patrick Agyemang had to be stretchered off in the 40th minute after an apparent ankle or Achilles' tendon injury. ???? pic.twitter.com/UN6I0UhSDZ
— USMNT Only (@usmntonly) April 6, 2026



