Franski miðvörðurinn Ibrahima Konate vill að framtíð sín verði komin á hreint áður en HM hefst í sumar en L'Equipe segir það meiri líkur en minni á að hann verði áfram hjá Liverpool.
Þessi 26 ára gamli varnarmaður verður samningslaus í sumar og var ekkert sem benti til þess að hann væri að fara gera nýjan samning við félagið.
Viðræður um nýjan samning voru settar í biðstöðu en eru nú komnar aftur af stað.
L'Equipe segir Konate vilja ganga frá öllu áður en hann flýgur með Frökkum á HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.
Samkvæmt miðlinum er líklegasta niðurstaðan að hann verði áfram hjá Liverpool. Þar kemur fram að stutt sé í samkomulag, en að það eigi eftir að ganga frá nokkrum smáatriðum.
Konate hefur einnig verið orðaður við Real Madrid en það er talið afar ólíklegt á þessari stundu.

