Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
   mán 06. apríl 2026 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mun Conte stýra ítalska landsliðinu aftur?
Mynd: EPA
Antonio Conte, stjóri Napoli, er talinn líklegastur til að taka við ítalska landsliðinu.

Genaro Gattuso sagði upp störfum eftir að honum mistókst að koma liðinu á HM eftir tap gegn Bosníu og Hersegóvínu í umspilinu.

Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að Conte sé opinn fyrir því að taka við af honum en hann á rúmt ár eftir af samningi sínum hjá Napoli.

Gazzetta dello Sport greinir frá því að Aurelio De Laurentiis, forseti Napoli, muni ekki mótmæla ef ítalska sambandið vill ráða Conte næsta sumar.

Conte stýrði landsliðinu frá 2014-2016 en hann stýrði liðinu á EM 2016 þar sem liðið tapaði gegn Þýskalandi í 8-liða úrslitum.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner