Mikel Arteta, stjóri Arsenal á Englandi, segir leikmenn sína hafa skilað nokkuð góðu dagsverki og hrósaði hann þá samlanda sínum, David Raya, í hástert eftir 1-0 sigurinn á Sporting í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld
Þetta var þolinmæðisvinna hjá Arsenal sem náði í mikilvægt sigurmark undir lokin er Kai Havertz fékk boltann frá Gabriel Martinelli og lagði hann undir Rui Silva í markinu.
„Ótrúlega ánægður að ná í útisigur í 8-liða úrslitunum gegn liði sem hefur ekki tapað heima í langan tíma. Ég held að síðasta tapið þeirra var í Evrópukeppninni sem sýnir hversu erfitt það er að ná úrslitum gegn þeim,“ sagði Arteta sem var orðinn svolítið smeykur um að markið kæmi ekki.
„Já af því að það vantaði aðeins upp á þegar við komumst inn á síðasta þriðjung vallarins. Við þurftum að vera ákveðnari, hraðari og skilvirkari til að brjóta þá niður þegar þeir fóru í lágvörn. Það var mark tekið af okkur og síðan komu 2-3 skipti þar sem við vorum nálægt en þá vantaði úrslitasendinguna. Í lokin fundu sóknarmennirnir töfrana sem tryggði sigurinn.“
Hann var sérstaklega ánægður með mennina sem komu inn af bekknum og segir hann mikilvægt að þeir hafi áhrif á þessum kafla tímabilsins.
„Fallegt og þetta eru nákvæmlega áhrifin sem þú þarft á þessum tímapunkti tímabilsins. Allir verða að hafa áhrif og það gerðu þeir svo sannarlega í kvöld,“
Raya var maður leiksins hjá UEFA og Sky Sports. Arteta segir félagið heppið að eiga hann.
„Hann átti tvö augnablik þar sem hann varði frábærlega. Þetta er Meistaradeildin og hún er alltaf ákveðin í teigunum því það eru svo mikil gæði þar.
„Í augnablikinu er hann stórkostlegur og óaðfinnanlegur síðan hann kom til okkar. Við erum heppnir að hafa hann hjá okkur,“ sagði Arteta.



