Man Utd íhugar að selja Ugarte - Liverpool vill leikmann í skiptum fyrir Salah - Vini Jr til Englands?
   mán 06. apríl 2026 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Vinicius um Alonso: Þetta var lærdómsríkt
Mynd: EPA
Vinicius Junior hefur tjáð sig um samband sitt við Xabi Alonso, fyrrum stjóra Real Madrid.

Þeir náðu alls ekki vel saman og það var mikið talað um að Vinicius vildi yfirgefa félagið. Alonso tapaði hins vegar baráttunni að lokum og var látinn taka pokann sinn.

„Þetta var erfiður kafli því ég spilaði marga leiki en ekki margar mínútur. Þjálfarinn var með sínar hugmyndir, allir þjálfarar fara sínar eigin leiðir. Það var ekki hægt að tengjast því sem hann vildi og það sem liðið vildi," sagði Vinicius.

„Þetta var lærdómsríkt. Ég lærði mikið og leikmennirnir hjálpuðu mér á þessum tíma. Eftir að hafa litið til baka hef ég þroskast sem manneskja og vonast til að ég geti haldið áfram svona með Arbeloa en ég er í góðu sambandi við hann."
Slapp
banner