Man Utd íhugar að selja Ugarte - Liverpool vill leikmann í skiptum fyrir Salah - Vini Jr til Englands?
   mán 06. apríl 2026 12:33
Elvar Geir Magnússon
Jón Daði byrjaður að æfa eftir aðgerð
Jón Daði Böðvarsson og Viðar Örn Kjartansson verða í sóknarlínu Selfyssinga í sumar.
Jón Daði Böðvarsson og Viðar Örn Kjartansson verða í sóknarlínu Selfyssinga í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Selfyssingar féllu úr Lengjudeildinni í fyrra en þeir verða með svakalega sóknarlínu í 2. deildinni í sumar.

Viðar Örn Kjartansson kom aftur heim í vetur og þá mun Jón Daði Böðvarsson taka slaginn áfram.

Viðar var með í 2-1 tapleiknum gegn Stjörnunni í gær en Jón Daði var skráður í liðsstjórn á skýrslu.

Lestu um leikinn: Stjarnan 2 -  1 Selfoss

„Hann fór í liðþófaaðgerð í janúar og er allur að koma til baka. Hann er byrjaður að æfa en ekki tilbúinn í þetta verkefni," sagði Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Selfyssinga, um Jón Daða í viðtali á RÚV fyrir leikinn.

„Viðar er klár og lítur alltaf betur og betur út. Hans reynsla og gæði hjálpa og styðja þetta unga lið sem við erum með og hann verður frábær fyrir okkur."

Jón Daði er 33 ára og Viðar Örn 36 ára en þeir eiga frábæran atvinnumannaferil og marga landsleiki að baki. Keppni í 2. deild karla hefst 1. maí.
Slapp
banner