Tveir stórleikir eru á dagskrá í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Evrópumeistarar Paris Saint-Germain taka á móti Englandsmeisturum Liverpool í París.
Liverpool var niðurlægt í 8-liða úrslitum enska bikarsins um helgina er liðið heimsótti Manchester City en leiknum lauk með öruggum 4-0 sigri City-manna.
Það er erfitt að sjá Liverpool særa Evrópumeistarana en getur Arne Slot komið öllum á óvart og sótt dýrmæt úrslit á erfiðum útivelli?
Á sama tíma mætast Barcelona og Atlético Madríd í Spánarslag, en fyrri leikurinn er á Nou Camp.
Leikir dagsins:
19:00 PSG - Liverpool
19:00 Barcelona - Atletico Madrid


