Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
banner
   mið 18. mars 2026 18:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Yamal bætti upp fyrir hræðilegt klúður
Lamine Yamal.
Lamine Yamal.
Mynd: EPA
Núna er búið að flauta til hálfleiks í leik Barcelona og Newcastle, stórkostlegur fyrri hálfleikur að baki.

Börsungar tóku tvisvar forystuna snemma leiks en Anthony Elanga, af öllum mönnum, svaraði í bæði skiptin og jafnaði fyrir Newcastle.

Fyrri hálfleikurinn var bráðfjörugur en ungstirnið Lamine Yamal sá til þess að Barcelona fór með forystuna inn í hálfleikinn.

Hann fékk dauðafæri til að skora stuttu eftir að uppbótartíminn byrjaði en setti boltann einhvern veginn yfir.

Barcelona fékk hins vegar vítaspyrnu stuttu síðar eftir að Kieran Trippier var brotlegur. Yamal fór á vítapunktinn og bætti þá upp fyrir klúðrið.

Staðan er 3-2 í hálfleik og Barcelona því einu marki yfir í einvíginu eins og er.

Hér fyrir neðan má sjá klúðrið og með því að smella hér má sjá markið.


Lamine Yamal big miss vs Newcastle 45+1'
by
u/977x in
soccer

Athugasemdir
banner
banner