Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 18. september 2020 10:34
Magnús Már Einarsson
Sá á klósettinu að hann hafi unnið 62 milljónir
Mynd: 1X2
Það var heldur betur gáttaður vinningshafi sem mætti í Laugardalinn með miðann sinn úr sunnudagsseðli Getrauna en miðinn færði honum vinning upp á tæpar 62 skattfrjálsar milljónir króna.

Er það stærsti vinningur í getraunum sem komið hefur til Íslands. Vinningshafinn tekur þátt í getraunum í hverri viku, velur táknin venjulega sjálfur með misjöfnum árangri, og styrkir í leiðinni sitt íþróttafélag. Í þetta skiptið leist honum ekkert á seðilinn og ákvað því að taka sjálfval með þessum stórkostlega árangri.

Svo vildi til að vinningshafinn var staddur í laxveiði og hafði brugðið sér á klósettið. Hann var inni á klósettinu með símann og miðann góða og datt í hug að kanna úrslit helgarinnar. Þar komst hann að því að hann var einn með 13 rétta og hafði hirt allan pottinn. Það var víst lítið veitt næstu daga.

„Íslenskar Getraunir óska vinningshafanum innilega til hamingju með vinninginn," segir í fréttatilkynningu frá Getraunum.
Athugasemdir
banner
banner