Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   fös 19. nóvember 2021 23:30
Victor Pálsson
Fofana nefnir þrjú ensk lið sem eru á draumalistanum
Mynd: EPA
Wesley Fofana, leikmaður Leicester City, á sér þann draum að spila fyrir Marseille einn daginn ef hann snýr aftur heim til Frakklands.

Fofana nefndi nokkur lið sem eru á draumalistanum en hann er meiddur þessa stundina og spilar ekki fyrr en á næsta ári.

Nokkur önnur stórlið eru á þessum lista Fofana sem mun væntanlega færa sig um set á næstu árum.

Fofana gæti leitað til Spánar eða þá spilað fyrir Chelsea, Manchester City eða Manchester United miðað við orð hans í þessu viðtali.

„Það eru Marseille, Real Madrid og Barcelona. Í ensku úrvalsdeildinni þá væru það Chelsea, Manchester United og Manchester City. Þú þarft að leggja þig fram til að upplifa drauminn," sagði Fofana.

„Ef þú leggur þig fram þá geturðu náð árangri í öllu. Ég hef alltaf verið stuðningsmaður Marseille, síðan ég fæddist. Það er draumurinn. Við vitum ekki hvað bíður okkar í fótboltanum."
Athugasemdir
banner
banner
banner