Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. mars 2021 23:35
Victor Pálsson
Saka með Arsenal á morgun
Mynd: Getty Images
Bukayo Saka verður með Arsenal á morgun sem spilar við West Ham í ensku úrvalsdeildinni.

Þetta staðfesti Mikel Arteta, stjóri liðsins, í dag en Saka var ekki með Arsenal gegn Olympiakos á fimmtudag.

Arsenal tapaði þeim leik 1-0 á heimavelli en kemst áfram eftir að hafa unnið fyrri viðureignina 3-1.

Saka var að glíma við smávægileg meiðsli aftan í læri en hann sýndi sínar réttu hliðar á æfingum fyrir leikinn á morgun.

Það er þó spurning hvort Willian verði með liðinu en hann var einnig frá gegn grísku meisturunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner