Leikur Barcelona og Granada í La Liga er nýhafinn.
Það hefur verið mikið bras á Barcelona að undanförnu en eins og allir vita yfirgaf Lionel Messi félagið í sumar þar sem liðið er í miklum fjárhagsvandamálum og hafði ekki tök á því að framlengja samning hans við félagið.
Barcelona tapaði í vikunni fyrsta leik tímabilsins í Meistaradeildinni er liðið bauð lægri hlut gegn Bayern Munchen 3-0 á Camp Nou.
Eins og fyrr segir er liðið að leika gegn Granada og staðan er 0-1 fyrir Granada eftir rúmlega 10 mínútna leik en markið kom strax á 2. mínútu.
Liðið er eins og staðan er í 10. sæti eftir fjórar umferðir.
Athugasemdir