Le10Sport í Frakklandi segir að Neymar sé nálægt því að skrifa undir framlengingu við Paris Saint-Germain.
Neymar er einn umtalaðasti leikmaðurinn í hverjum glugga en hann er reglulega orðaður við Barcelona.
Brassinn lék með Barcelona við góðan orðstír í nokkur ár áður en hann samdi við frösnku risana fyrir metupphæð.
Le1Sport segir allar líkur á að Neymar skrifi undir samning sem gildir til ársins 2026.
Einnig er tekið fram að það gangi ekki eins vel að semja við hina stjörnu liðsins, Kylian Mbappe.
Athugasemdir