Chelsea hefur náð samkomulagi við franska félagið Rennes um kaup á markverðinum Edouard Mendy.
Kaupverðið hljóðar upp á 22 milljónir punda.
Mendy er mættur í læknisskoðun og hann gæti skrifað undir hjá Chelsea í kvöld eða á morgun.
Kaupverðið hljóðar upp á 22 milljónir punda.
Mendy er mættur í læknisskoðun og hann gæti skrifað undir hjá Chelsea í kvöld eða á morgun.
Frank Lampard, stjóri Chelsea, hefur verið á höttunum á eftir markverði í allt sumar.
Kepa Arrizabalaga hefur fengið mikla gagnrýni í marki Chelsea en hann gerði sig sekan um slæm mistök í öðru markinu gegn Liverpool í gær.
Athugasemdir