Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 23. janúar 2020 16:30
Magnús Már Einarsson
Southampton ætlar ekki að selja Adams og Vestergaard
Jannik Vestergaard
Jannik Vestergaard
Mynd: Getty Images
Southampton ætlar ekki að selja framherjann Che Adams eða varnarmanninn Jannik Vestergaard í þessum mánuði.

Leeds hefur verið að eltast við Adams á meðan Vestergaard hefur verið óvænt orðaður við Leicester.

Ralph Hasenhuttl, stjóri Southampton. segist ekki ætla að selja neinn leikmann áður en félagaskiptaglugginn lokar í næstu viku.

„Ég þarf á öllum leikmönnum í hópnum að halda og það er það sem ég mun segja við þá, þetta er ekki möguleiki að okkar hálfu. Við þurfum alla leikmenn og ég treysti öllum leikmönnum," sagði Hasenhuttl.

„Ég vil ekki láta neinn fara. Enginn hefur komið inn á skrifstofu til mín og beðið um að fara. Við viljum ekki selja neina leikmenn."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner