Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 25. febrúar 2021 15:00
Magnús Már Einarsson
Bielsa vonar að Grealish spili á móti Leeds
Mynd: Getty Images
Marcelo Bielsa, stjóri Leeds, vonast til að Jack Grealish, fyrirliði Aston Villa, verði leikfær þegar liðin mætast síðdegis á laugardag.

Grealish var ekki með gegn Leicester um síðustu helgi vegna meiðsla.

„Hann er frábær leikmaður sem getur komið þér úr jafnvægi," sagði Bielsa.

„Ég vil alltaf frekar að andstæðingarnir hafi sína bestu leikmenn með þó að það hagnist þeim og geri liðið hættulegra."

„Það er hvati fyrir okkur að mæta slíkum leikmönnum og reyna að takast á við þá."

Athugasemdir
banner
banner
banner