Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 25. febrúar 2021 16:30
Elvar Geir Magnússon
Lamptey að snúa aftur
Tariq Lamptey.
Tariq Lamptey.
Mynd: Getty Images
Tariq Lamptey, lykilmaður Brighton & Hove Albion, hefur getað æft í vikunni og eru það svo sannarlega gleðitíðindi fyrir liðið að hann sé að snúa aftur.

„Hann æfði aftur í dag og það eru engin vandræði. Þetta hefur verið góð vika fyrir hann," segir Graham Potter, stjóri Brighton.

„Hnn mun ekki vera í byrjunarliðinu en það er möguleiki á að hann verði í hópnum gegn West Brom."

Þessi tvítugi leikmaður fór frábærlega af stað á tímabilinu en hefur ekki getað spilað síðan 16. desember vegna meiðsla aftan í læri.

Brighton er sem stendur í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, fjórum stigum frá fallsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner