Man Utd hefur rætt við Mbeumo - Newcastle vill Delap og Pedro - Chelsea hefur rætt um Ekitike
   mán 26. maí 2025 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mbappe vann gullskó Evrópu - Gyökeres skoraði fleiri mörk
Mynd: EPA
Kylian Mbappe vann gullskó Evrópu en hann var markahæsti leikmaðurinn í stærstu deildum Evrópu.

Hann var harðlega gangrýndur í upphafi tímabilsins en hrökk svo sannarlega í gang.

Hann skoraði 31 mark í spænsku deildinni en Robert Lewandowski var næst markahæstur með 27 mörk. Það er hins vegar ekki nóg að skora helling af mörkum því Mbappe vann Viktor Gyökeres í baráttunni um gullskóinn sem skoraði 39 mörk í portúgölsku deildinni.

Leikmenn fá stig fyrir mörk skoruð en leikmenn í fimm stærstu deildunum fá tvö stig fyrir hvert mark skorað en leikmenn í lakari deildum fá eitt og hálft stig eins og leikmenn í portúgölsku deildinni. Salah var í 3. sæti með 29 mörk.


Athugasemdir
banner