Arsenal gerir tilboð í Gyökeres - Man Utd skipuleggur tilboð í Delap - Spurs býðst Sane
   þri 27. maí 2025 20:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Yfirlýsing frá Baldvini Borgars: Ætla mér að nýta þetta atvik til betrunar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í dag var Baldvin Már Borgarsson, þjálfari Árbæjar, úrskurðaður í fjögurra leikja bann fyrir hegðun sína á hliðarlínunni og eftir leik Árbæjar og Magna um helgina.

Baldvin lét ósæmileg orð falla við dómara leiksins og uppskar fjögurra leikja bann. Fótbolti.net fjallaði um málið fyrr í dag og í kjölfarið hefur Baldvin gefið út yfirlýsingu sem má sjá hér að neðan.

Hann er alls ekki sáttur við aðdragandann að því að hann fékk sitt annað gula spjald í leiknum. Í kjölfarið missti hann alla stjórn á sér og sér hann eftir því.

Yfirlýsing Baldvins
Vegna dómsúrskurðar aganefndar KSÍ og fréttaflutninga um málið í kjölfarið langar mig að koma á framfæri eftirfarandi:

Í leik Árbæjar og Magna fæ ég mjög ósanngjarna brottvísun frá AD1 sem á sér þann aðdraganda að ég er að eiga samtal við leikmann minn við hliðarlínuna meðan leikurinn er stopp vegna aðhlynningar leikmanns Magna.

Í miðju samtali mínu við leikmanninn kemur AD1 askvaðandi inn í svokallað “comfort zone” mitt og míns leikmanns og biður mig um að hafa afskipti af varamannabekk mínum, ég bendi AD1 á að ég sé að ræða við leikmanninn minn og spyr hvort ég fái 10 sekúndur til að klára það, AD1 hafnar þeirri beiðni og þá sný ég mér að varamannabekknum mínum og öskra á þá “þegiði strákar” til þess að fara að fyrirmælum AD1, sem strax í kjölfarið biður dómara leiksins um að koma að hliðarlínunni að gefa mér mitt seinna gula spjald, við þær fréttir missti ég alla stjórn á sjálfum mér og læt útúr mér mörg mjög ljót ummæli í ljósi þess að mér fannst mjög illa á mér brotið í algjörlega sjálfsköpuðum aðstæðum af hálfu AD1, í kjölfarið kemur svo hrein og bein lygi af hálfu dómarateymisins í skýrslu til KSÍ að ég hafi átt að fá seinna gula spjaldið fyrir það að hafa á mjög ákveðinn hátt stigið inn í “comfort zone” aðstoðardómarans og öskrað í andlitið á honum skammir, sem á sér engan stoð í raunveruleikanum svo þeir hreinlega klóra yfir sínar ömurlegu ákvarðanir með lygum.

Hinsvegar gengst ég algjörlega við minni hegðun í kjölfarið sem er gjörsamlega óásættanleg, þrátt fyrir það að mér þyki illa á mér brotið af hálfu AD1, og ég verðskuldað fæ beint rautt spjald frá dómaranum frekar en seinna gula þar sem ég missti mig og lét frá mér þessi ljótu og leiðinlegu ummæli áður en dómarinn var mættur til þess að gefa mér ósanngjörnu brottvísunina sem ég var að fá að beiðni AD1.

Ég bið alla þá sem þykja ummæli mín særandi, móðgandi og niðrandi innilegrar afsökunar, ég á klárlega skilið þessa þyngingu á óréttláta leikbannið sem mér var gefið og sektina sem fylgir, ég ætla mér að nýta þetta atvik til betrunar og vona að aðrir aðilar málsins geri það líka, þar sem það hefði mjög margt mátt fara betur í kringum þetta leiðinlega atvik.

Virðingarfyllst,
Baldvin Borgarsson.
Athugasemdir
banner