Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
Elfar Árni: Spennandi að sjá hvort einhver nýr verði á bekknum í næsta leik
Modoumatarr frá Stokkhólmi: Rólegt líf á Húsavík.
Maggi svekktur: Þeir eru með hörkuhóp
Davíð Smári: Svo sem hægt að kenna dómaranum um
Damir: Gekk betur þegar við föttuðum það
„Smá högg í vetur þegar ég var ein af þeim elstu 22 ára"
„Sigurmark í lokin gerir þetta ennþá sætara“
Mist lagði upp sigurmarkið - „Þetta var nákvæm hreinsun“
Hannah: Rúsínan í pylsuendanum
Arna Sif: Gerist eiginlega ekki verra
Hólmar: Hefur mikla þýðingu fyrir alla í kringum Val
Aron Sig: Þess vegna ertu í þessu
Hemmi: Umræðan var óþarflega neikvæð og leiðinleg
Óskar Hrafn: Hef lítinn sem engan smekk fyrir Val
Best í Mjólkurbikarnum: Barðist um milljónir á Netflix
Óskar Smári: Þær geta fokking djöflast þessar stelpur
Birna Jóhanns: Við náðum svo að setja þetta mark í lokin
„Hefði verið extra sætt fyrir hana að ná að setja hann“
Matthías: Ég er stoltur að hafa lifað það af
Agla María fagnaði 250 leikja áfanga með sigri - „Stór áfangi fyrir mig“
   sun 27. ágúst 2023 21:41
Sverrir Örn Einarsson
Haraldur Freyr: Meðan það er von þá er það séns
Haraldur Freyr Guðmundsson
Haraldur Freyr Guðmundsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var ekkert fallegt. Mér fannst við lélegir í fyrri hálfleik og eins og við þyrðum ekki að hafa boltann og sköpuðum okkur ekki nein færi. Seinni hálfleikurinn var töluvert betri hjá okkur þar sem við allavega reyndum og sköpuðum okkur ágætis stöður.“ Sagði Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur um leikinn ef Keflavík og Fram gerðu markalaust jafntefli í heldur bragðdaufum leik á HS Orkuvellinum í Reykjanesbæ fyrr í dag.

Lestu um leikinn: Keflavík 0 -  0 Fram

Staða Keflavíkur batnaði ekki með jafnteflinu í kvöld en langt er í öruggt sæti í deildinni. Hvernig er að gíra mannskapinn upp í leiki þegar vonin er veik og verður veikari með hverjum leiknum sem líður?

„Það sjá það allir sem sjá töfluna en meðan það er von þá er það séns. Við höldum bara áfram og það er bara næsti leikur gegn Stjörnunni á sunnudaginn úti og svo koma fimm leikir í úrslitakeppni. Við erum ennþá bara brattir og teljum okkur geta snúið þessu við. “

Keflavík skoraði mark í dag sem dæmt var af þegar Stefan Ljubicic skallaði boltann í netið af talsvert löngu færi. Elías Ingi Árnason sem dæmdi fyrri hálfleik í dag flautaði þó brot á Stefan vegna bakhrindingar. Hvernig horfði atvikið við Haraldi?

„Mér fannst þetta allavega mjög lítið, en það er bara eins og það er hann dæmdi aukaspyrnu en ég á eftir að skoða það aftur. “

Sagði Haraldur en allt viðtalið við hann má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner