Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 27. október 2022 18:14
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Suarez gaf Nunez ráð - „Hlustaðu á hálfvita eins og mig"
Mynd: Getty Images

Ferillinn hjá Úrugvæanum Darwin Nunez hjá Liverpool fór ansi skrautlega af stað þegar hann fékk að líta rautt spjald aðeins í öðrum leik sínum í ensku úrvalsdeildinni.


Hann fékk rautt fyrir að skalla Joachim Andersen varnarmann Crystal Palace.

Luis Suarez, landi Nunez og fyrrum leikmaður Liverpool hafði samband við hann stuttu eftir þetta og gaf honum ráð.

„Það var mikilvægt fyrir mig að hann skyldi hafa samband. Hann er goðsögn allsstaðar í heiminum. Ég er rétt að byrja og er ungur. Hann þekkir þetta allt því hann hefur þegar spilað í úrvalsdeildinni með Liverpool," sagði Nunez í samtali við ESPN.

Suarez kom sér nokkrum sinnum í vandræði fyrir slæma hegðun inn á vellinum en Suarez gaf Nunez góð ráð til að halda sig frá vandræðum.

„Hann sagði mér að þetta gerist í hverjum einasta leik, þeir munin finna mig, ýta í mig og ég yrði að vera sterkur og ekki endurtaka þetta sem ég gerði. Hann sagði mér að „hlusta á hálfvita eins og mig."


Athugasemdir
banner
banner