Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 28. janúar 2020 15:18
Elvar Geir Magnússon
Fernandinho búinn að framlengja
Fernandinho og fjölskylda.
Fernandinho og fjölskylda.
Mynd: Manchester City
Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn fjölhæfi Fernandinho hefur skrifað undir nýjan samning við Manchester City út næsta tímabil.

Þessi 34 ára miðjumaður hefur spilað í hjarta varnarinnar á þessu tímabili eftir meiðsli Aymeric Laporte.

Næsta tímabil verður hans áttunda hjá Manchester City. Þrívegis hefur hann orðið Englandsmeistari hjá félaginu.

„Ég vil koma því á framfæri að ég er ótrúlega þakklátur. Ég hef myndað sterk og ómetanleg bönd við stuðningsmenn liðsins," segir Fernandinho.

Alls hefur hann leikið 299 leiki fyrir félagið og skorað 23 mörk.


Athugasemdir
banner
banner
banner