Roma vill Casemiro - Napoli og Juventus fylgjast með Höjlund - Úlfarnir búast við tilboðum í Cunha
   þri 28. janúar 2025 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: KSÍ 
KSÍ bætir 35 milljónum við framlag UEFA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Evrópska fótboltasambandið, UEFA, hefur undanfarin ár greitt félögum í Bestu deild karla sérstakt framlag vegna þróunarstarfs barna og unglinga í fótbolta.

Síðustu þrjú ár hefur UEFA gert slíkt hið sama fyrir kvennaboltann en það eru ekki öll félagslið landsins sem eiga rétt á framlagi frá UEFA.

Því ákvað KSÍ að auka framlagið með því að bæta 35 milljónum króna við og dreifa þeirri upphæð til félaga sem ekki fengu framlag frá UEFA.

„Samkvæmt ákvörðun stjórnar skal framlag KSÍ til aðildarfélaga renna óskipt til eflingar knattspyrnu barna og unglinga frá yngstu iðkendum til og með 2. aldursflokks karla og kvenna. Úthlutun er háð því að félög haldi úti sjálfstæðri starfsemi í yngri flokkum beggja kynja. Félög sem taka þátt í samstarfi í yngri flokkum eða eru ekki með þátttökulið í Íslandsmóti í yngri flokkum beggja kynja fá 75% framlag miðað við deildarstöðu meistaraflokks," segir meðal annars í tilkynningu frá KSÍ.

Alls fá 37 félög styrk frá KSÍ og þar af eru 12 félög sem fá rúmlega 1,5 milljón króna í sinn hlut. Þar á meðal eru ÍBV, Afturelding, Leiknir R., Þróttur R. og Þór.

Töfluna í heild sinni má sjá í upprunalegri frétt frá KSÍ.
Athugasemdir
banner
banner
banner