Það fara átta leikir fram í Lengjubikarnum í dag og fjórir þeirra eru í A-deild.
Þar er mesta spennan í karlaflokki þegar KR og Njarðvík eigast við á KR-velli í því sem gæti reynst úrslitaleikur um toppsæti riðils 3.
Í riðli 1 spilar Stjarnan við HK í æsispennandi toppslag sem gæti einnig reynst úrslitaleikur um toppsæti riðilsins. Fram og Vestri eigast einnig við.
Í kvennaflokki mætast Víkingur R. og ÍBV í Fossvogi og þar geta Víkingar farið langleiðina með að tryggja sér toppsæti riðilsins með sigri.
KÞ spilar svo við Völsung í Laugardalnum og eigast Smári og Augnablik við í nágrannaslag sem verður þó leikinn í Egilshöll.
Þá eru einnig leikir í B-deild karla, þar sem Augnablik og Árbær taka á móti Kormáki/Hvöt og Reyni Sandgerði.
Lengjubikar karla - A deild, riðill 1
14:00 Stjarnan - HK (Miðgarður)
14:00 Fram - Vestri (Lambhagavöllurinn)
Lengjubikar karla - A deild, riðill 3
14:00 KR - Njarðvík (KR-völlur)
Lengjubikar karla - B deild, riðill 1
14:00 Augnablik - Kormákur/Hvöt (Fífan)
Lengjubikar karla - B deild, riðill 2
14:00 Árbær - Reynir Sandgerði (Domusnovavöllurinn)
Lengjubikar kvenna - A deild, riðill 2
14:00 Víkingur R. - ÍBV (Víkingsvöllur)
Lengjubikar kvenna - C deild, riðill 1
16:00 KÞ - Völsungur (Þróttheimar)
Lengjubikar kvenna - C deild, riðill 2
18:00 Smári - Augnablik (Egilshöll)
Athugasemdir



